Sniglapóstur

Smá fegurð í hversdaginn

Bréf sem lífgar upp á hversdaginn

Innan um reikninga og auglýsingar liggur gult umslag, stílað á þig. Í því er ljóð og myndskreyting eftir Iðu Ósk, gert í höndunum. Einu sinni í mánuði er tilefni til að hægja á, hella upp á kaffi og opna bréf.

sending innifalin · uppsögn hvenær sem er

Gult umslag frá Sniglapósti með frímerki og handmáluðu bréfi með gulri stjörnu
Opið gult umslag með handmáluðu bréfi og gulri stjörnu

Heyrist: bank! bank!
Hringt: ding! ding!
Um lúgu læðist bréf

Jólagjöf sem kemur í hverjum mánuðiPantaðu í síðasta lagi 15. des. til að fá gjafabréfið í pósti.Skoða gjafir →

Fegurðin í því smáa

Hversdagurinn er oft fullur af skjám, tilkynningum og asa. En stundum er það smæsta sem gleður mest: morgunbirtan á eldhúsborðinu, heitur kaffibolli og umslag sem einhver bjó til handa þér.

Sniglapóstur er gerður til að lífga upp á hversdagsleikann og draga okkur úr litskrúðugum símanum yfir í okkar raunverulega umhverfi. Hví ættum við ekki að lita það líka með list og ljóðum?

Bakhlið guls umslags lokað með handgerðum stjörnulímmiða

Stjarna innsiglar umslagið

Kannski ert þú sú sem gefur alltaf öðrum. Sniglapóstur getur líka verið gjöf til þín sjálfrar: aðeins meiri litur í hversdaginn og ein stund í mánuði sem er bara þín.

Svona virkar það

Lítil stund í hverjum mánuði

  1. Þú skráir þig

    Mánaðarlega eða árlega, innanlands eða til útlanda. Það tekur bara smástund og þú getur sagt upp hvenær sem er.

  2. Ég sest við skrifborðið

    Með pappír, liti og frímerki. Kjarninn í hverju bréfi er ljóð og myndskreyting, og stundum leynist eitthvað fleira inn á milli.

  3. Þú opnar póstkassann

    Fyrsta bréfið fer í póst um næstu mánaðarmót og svo kemur nýtt í hverjum mánuði. Eitthvað handgert innan um reikningana.

Myndskreytt ljóð eftir Iðu Ósk: handskrifaðar línur á milli málaðra stjarna

Ljóð og mynd: Iða Ósk

Úr bréfunum

Smá forsmekkur

Heyrist: bank! bank!

Hringt: ding! ding!

Um lúgu læðist bréf

— Iða

JólinGjöf

Jólagjöf sem kemur í hverjum mánuði

Greidd einu sinni, í 3, 6 eða 12 mánuði, frá 3.990 kr. Með gjafabréfi til að setja undir tréð.

Tvö gul umslög frá Sniglapósti, annað lokað með frímerki og hitt opið með handmáluðu bréfi
Iða Ósk við skrifborðið með gul umslög, frímerki og pappírsstjörnur

Við skrifborðið: umslög, frímerki og pappírsstjörnur

Hver skrifar bréfin?

Hæ, ég heiti Iða Ósk

Fyrir mér er ekkert skemmtilegra en að fá tækifæri og rými til að dúlla mér í ljóðum og myndskreytingum. Í hverjum mánuði sendi ég frá mér allskonar; kjarninn verður þó alltaf ljóð og myndskreyting, en hver veit hvað meira mun leynast inn á milli.

Gott að vita

Hvernig virkar Sniglapóstur?

Sniglapóstur er ljóðaáskrift í pósti. Í hverjum mánuði sendi ég þér frímerkt bréf í umslagi, beint inn um lúguna. Kjarninn er alltaf ljóð og myndskreyting eftir mig, en hver veit hvað fleira leynist inn á milli.

Hvenær kemur fyrsta bréfið?

Fyrsta bréfið fer í póst um næstu mánaðarmót eftir að þú skráir þig, og svo kemur nýtt bréf í hverjum mánuði á meðan áskriftin er virk.

Hvað kostar áskriftin og sendir þú til útlanda?

Innanlands kostar Sniglapóstur 990 kr. á mánuði eða 10.500 kr. á ári, og sendingarkostnaður er innifalinn. Já, ég sendi líka til útlanda: innan Evrópu kostar áskriftin 1.100 kr. á mánuði eða 11.660 kr. á ári, og utan Evrópu 1.350 kr. á mánuði eða 14.350 kr. á ári. Þú velur leiðina í greiðsluforminu.

Allar spurningar og svör →

Lítil stund fyrir næstu mánuði

Næsta bréf fer í póst um næstu mánaðarmót.