Sniglapóstur
Um verkefnið

Smá fegurð inn um lúguna

Sniglapóstur snýst um litlu stundirnar: að opna póstkassann og finna eitthvað annað en reikning, setjast niður með kaffibolla og lesa ljóð sem var skrifað, teiknað og póstlagt í höndunum.

Hver man ekki eftir því að fyllast eftirvæntingu við að fá bréf stíluð á sig í gegnum póstlúguna, en nú eru einu bréfin sem læðast inn annaðhvort ruslpóstur eða ógreiddir reikningar.

Sniglapóstur er gerður til að lífga upp á hversdagsleikann og draga okkur úr litskrúðugum símanum yfir í okkar raunverulega umhverfi. Hví ættum við ekki svo að lita það líka með list og ljóðum.

Mörg okkar þekkja það að grípa símann í hvert sinn sem stund gefst. Bréf í póstkassanum biður ekki um neitt. Það má bíða á eldhúsborðinu þangað til þú hefur tíma til að hægja á og gera eitthvað fyrir sjálfa þig.

Fyrir mér er ekkert skemmtilegra en að fá tækifæri og rými til að dúlla mér í ljóðum og myndskreytingum. Í þessari póstáskrift svokallaðri sendi ég frá mér allskonar í hverjum mánuði; kjarninn verður þó alltaf ljóð og myndskreyting, en hver veit hvað meira mun leynast inn á milli.

— Iða Ósk

Iða Ósk við skrifborðið með gul umslög, frímerki og pappírsstjörnur

Hvert bréf verður til við þetta skrifborð

Um Iðu Ósk

Iða Ósk Gunnarsdóttir er leikkona og leikstjóri og höfundur ljóðabókarinnar Kerti og spil. Hún skrifar, myndskreytir og póstleggur hvert bréf Sniglapósts sjálf.

Kvikmyndir, bækur og fleira á idaosk.com →