draft: true er tekið út.Ljóð í póstkassann í stað tilkynninga í símann
Síminn titrar. Einhver líkaði við mynd, ný auglýsing, áminning, frétt. Tilkynningar eru stuttar og þær kalla á okkur, hvort sem okkur hentar eða ekki.
Bréf virkar öðruvísi.
Bréf sem bíður eftir þér
Bréf í póstkassanum kallar ekki á þig. Það liggur þar þangað til þú tekur það, og svo á borðinu þangað til þú hefur stund til að opna það. Þú ræður hvenær.
Það er eitthvað fallegt við það: að eiga eitthvað sem er bara þitt, sem er ekki hluti af neinu streymi og hverfur ekki þegar þú skrollar áfram.
Lítil stund í hverjum mánuði
Í Sniglapósti sendi ég handgert bréf einu sinni í mánuði. Kjarninn er alltaf ljóð og myndskreyting, og stundum leynist eitthvað fleira inn á milli.
Það kemur ekki í stað símans, og þarf þess ekki. En það getur verið ein lítil stund í mánuði þar sem þú hellir upp á kaffi, leggur símann frá þér og gerir eitthvað fyrir sjálfa þig.
- 990 kr. á mánuði eða 10.500 kr. á ári innanlands, sending innifalin.
- Þú getur sagt upp hvenær sem er.
